Fengið að láni hjá Vísi.is
Royal Unibrew er annar stærsti drykkjarvöruframleiðandi í Skandinavíu, en samstæðan samanstendur af fjórum dönskum, tveimur litháenskum, tveimur pólskum og tveimur lettneskun drykkjarvöruframleiðendum.
Meðal vörumerkja eru Albani, Faxe, Ceres, Maribo og Thor í Danmörku og Tauras og Kalnapilis í Litháen. Starfsmenn Royal Unibrew eru um um 2.300 víða um heim og félagið flytur úr framleiðslu sína til um 65 landa. Félagið velti tæpum 30 milljörðum íslenskra króna árið 2004, að því er fram kemur í tilkynningu FL Group.
... Mikið var að íslendingar keyptu eitthvað með viti, þvi allir sem búið hafa á eyjunni Fyn vita að Albani bruggar besta bjórinn eða Odense Classic. Gaman að segja að við danina að við íslendingarnir eigum 10,7% í fredagsbarnum hér í skólanum sem haldið er uppi að mestu leiti af Albani.
FL Group í ölið
FL Group hefur keypt tæplega 10,7 prósenta hlut í dankska drykkjarvöruframleiðandanum Royal Unibrew A/S. Markaðsvirði hlutarins er um 4,2 milljarðar króna, að því er segir í tilkynningu FL Group til Kauphallar Íslands.Royal Unibrew er annar stærsti drykkjarvöruframleiðandi í Skandinavíu, en samstæðan samanstendur af fjórum dönskum, tveimur litháenskum, tveimur pólskum og tveimur lettneskun drykkjarvöruframleiðendum.